Vellíðanarvaktin
Óháður þriðji aðili sem vaktar og eflir vellíðan á vinnustaðnum. Vellíðanarvaktinni er sinnt af teymi sérfræðinga á sviði mannauðsstjórnunar, jákvæðrar sálfræði, lögfræði og sáttamiðlunar.
Ávinningur fyrir vinnustaði
Þjónusta Vellíðanarvaktarinnar getur skilað fyrirtækjum margvíslegum ávinningi til eflingar vellíðanar.
​Aukin vellíðan
Aukin vellíðan starfsfólks og styrkari vinnuvernd.
​Sterkari ímynd
Sterkari ímynd og eftirsóknarverðari vinnustaður.
Skilvirkari stjórnun
Stjórnendur fá betri og skýrari yfirsýn um líðan starfsfólks.
Betri farvegur
Gripið fljótt og örugglega inn í málin og þau sett í farveg.
Samkvæmt lögum er vinnustöðum skylt að hafa skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustaðnum. Áætlunin skal vera aðgengileg öllum starfsmönnum og ætlað að vera opinber vegvísir er kemur að heilbrigði starfsmanna.
Vellíðanarvaktin sinnir bæði almennri og sérhæfðri vöktun á vinnustaðnum.
Almenn vöktun
Við vöktum og leggjum til leiðir til eflingar vellíðanar á vinnustaðnum
Vellíðanarvaktin sinnir reglubundnum mælingum á vellíðan og ánægju starfsfólks á vinnustaðnum. Við mótum tillögur um úrbætur eftir atvikum, setur upp vellíðanaráætlanir og endurskoðum þær eftir þörfum.
Sérhæfð vöktun
Við sjáum um sálfélagsleg mál sem upp kunna að koma á vinnustaðnum
Vellíðanarvaktin skapar sameiginlegan vettvang fyrir alla starfsmenn að tilkynna til óháðs aðila um vanlíðan í starfi eða óæskilega hegðun.
Starfsfólk þeirra vinnustaða sem taka þátt í Vellíðanarvaktinni geta tilkynnt mál til okkar, í fullum trúnaði. Við sjáum um þau mál sem upp koma og fylgjum þeim eftir þar til viðeigandi niðurstaða fæst.
​
Mál sem þarfnast sérhæfðar meðferðar verða sett í viðeigandi farveg hjá samstarfsaðilum okkar. Slíkir aðilar geta t.d. verið sálfræðingar, félags- og fjölskylduráðgjafar, læknar og iðjuþjálfar.
Óæskileg hegðun
Óæskileg hegðun veldur vanlíðan fólks á vinnustaðnum. Aðrar orsakir vanlíðanar á vinnustaðnum geta t.d. verið mikið og langvarandi vinnuálag, ójafnvægi milli vinnu og einkalífs, almenn tjáskipti starfsfólks óeðlileg og óæskileg vinnustaðamenning.
​
Dæmi um tilvik sem falla undir óæskilega hegðun:
-
Kynferðisleg áreitni.
-
Einelti.
-
Líkamlegt og andlegt ofbeldi.
-
Samskiptaerfiðleikar milli starfsfólks.
-
Samskiptaerfiðleikar við viðskiptavini.
-
Áfengis- og vímuefnanotkun.
Hvers vegna óháður aðili?
Skýr skilaboð
Gefur starfsfólki skýr skilaboð - að þeir beri hag starfsfólksins fyrir brjósti.
Trúnaðarsamtal
Starfsfólk fær kost á að geta átt trúnaðarsamtal við þriðja aðila
Óháða sýn
Starfsfólk fær óháða sýn á málið til leiðbeiningar um næstu skref.
Einfalt ferli
En skilaboð við ráðgjafa og málið sett í ferli í samráði við starfsmanninn.
Fagleg meðhöndlun
Málin fara í ferli sem tryggir faglega meðhöndlun.